Aðalfundur Rafmyntaráðs Íslands, kt. 440515-1340, verður haldinn þann 5. október kl 16:00 í Sal 3 í Háskólabíó
Boðun til aðalfundar Rafmyntaráðs Íslands
Aðalfundur Rafmyntaráðs Íslands, kt. 440515-1340, verður haldinn þann 5. október kl 16:00 í Sal 3 í Háskólabíó. Fundurinn fer fram á íslensku.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Tillaga um frávik frá dagskrá aðalfundar
Kosning stjórnar
Frestun aðalfundar
Tillaga í lið 2:
Lagt er til að aðalfundur kjósi eingöngu stjórn og verði öðrum liðum aðalfundar frestað. Ástæðan er sú að stjórnin er nú óstarfhæf vegna úrsagna stjórnarmeðlima úr stjórn. Nýrri stjórn verður falið á aðalfundinum að boða til framhaldsaðalfundar þar sem öðrum aðalfundarstörfum verður lokið.
Stjórn félagsins vekur sérstaka athygli á því að:
Félagsmönnum einum er heimilt að taka þátt á aðalfundi félagsins:
Félagsmenn eru þeir sem uppfylla skilyrði 5. gr. samþykkta félagsins um félagsaðild sem gerir kröfu um að félagsmenn hafi lögheimili á Íslandi, hafi íslenska kennitölu, vilja til að vinna að markmiðum félagsins. Ef þú uppfyllir skilyrðin, hefur skráð þig í samtökin og greitt árgjaldið getur þú tekið þátt í aðalfundi Rafmyntaráðs.
Aðeins kosningabærir aðilar hafa heimild til að kjósa stjórn:
Kosningabærir aðilar eru þeir sem hafa verið skráðir félagsmenn lengur en eitt ár og uppfylla ofangreinda kröfu samþykkta félagsins um félagsaðild.
Greiðsla á félagsgjaldi:
Hægt er að greiða félagsgjald, 5.000 kr. inn á reikning félagsins 0133-26-440515 kt: 440515-1340, fyrir aðalfundinn til að gerast meðlimur.
Framboð í stjórn
Stjórn Rafmyntaráðs skipa sjö einstaklingar hverju sinni. Þeir fimm félagsmenn sem hljóta flest atkvæði á aðalfundi skulu skipa stjórn félagsins og næstu tveir eru varamenn.
Frambjóðendur skulu senda framboð á ibf@ibf.iseigi síðar en kl. 15:00 miðvikudaginn 5. október nk. með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn
Kennitala
Kynningartexti (hámark 100 orð)
Séu frambjóðendur ekki félagsmenn telst framboðið ógilt.
Síðustu ár hefur frambærilegur hópur af fólki með ólíka reynslu mótað stefnu Rafmyntaráðs ár hvert. Rétt er að tak fram að engin sérstök þekking er nauðsynleg en það skiptir samtökin miklu máli að hafa sem mesta fjölbreytni innanborðs.